Þessi texti mun vera á gjafakortinu:
Til hamingju! Þú hefur fengið skyndihjálpartösku að gjöf!
Skyndihjálpartöskur eru ómissandi þar sem neyðarástand ríkir. Þær eru oftast með fyrstu hjálpargögnum sem sent er á staði þar sem náttúruhamfarir hafa orðið.
Skyndihjálpartaskan inniheldur meðal annars hanska, sárabindi, plástra, grisjur, skæri, skurðhníf, sótthreinsiefni, handklæði og ýmis lyf.
Gjöf þín veitir börnum og fjölskyldum öryggi á erfiðum tímum.